Hálendismiðstöðin að Hrauneyjum
Hálendismiðstöðin að Hrauneyjum er síðasti áningastaður áður en haldið er inn á hálendi Íslands. Hrauneyjar er í nálægð við margar af þekktustu náttúruperlum hálendisins, þ.á.m. Landmannalaugar, Þjórsárdal, Heklu, Sprengisand, Veiðivötn og Fjallabak. Óspillt náttúran og friðsældin lætur engan ósnortinn sem þangað leitar.
Hálendismiðstöðin að Hrauneyjum er í aðeins 150 km fjarlægð frá Reykjavík og er opin allt árið um kring, fyrir utan jól og áramót.

