- 31.08.2010 Aurora Forecast Sept - Oct 2010
- 05.03.2010 Ranga in the Financial Times
- 05.03.2010 Eyjafjallajökull eruption
- 20.02.2010 Latest aurora news from Hotel Ranga
- 28.01.2010 Aurora borealis forecast
- Meira..
Veitingastaðurinn á Hrauneyjum
Veitingar á hálendi Íslands
Hrauneyjar Hálendismiðstöð hefur á að skipa frábærum grill veitingastað, er hann ágætlega þekktur hjá fjallafólki sem og meðal veiðimanna á fjöllum. Hálendismiðstöðin býður safaríkan grill matseðil, opið er daglega frá klukkan 10:00 til 22:00 .
Þema staðarins og matseðilsins í nafngiftum er íslenska veðrið.
Af nógu er að taka, því að skjótt skiptast veður í lofti.
Barinn í Hálendismiðstöðinni á Hrauneyjum nefnist Fannbarinn og þar má m.a. kaupa Kvöldroða og Morgundögg.
Af grillmatseðlinum mælum við með Páskahreti, Strekkingi, Fardagaflani, Kóngsbænadagsíhlaupi, eða Þjóðarrembingi.
Léttur hádegisveður er í boði á sumrin sem og kvöldverðarmatseðill, jafnt fyrir hópa sem einstaklinga.
Kaffi, kakó, te, tertur og kökur, gos, ís og sælgæti ýmisskonar, á öllum tímum dags.
Hamborgarar:
- Páskahret: bara hamborgarinn, kokteil sósa og salat.
- Næðingur: einfaldasti hamborgarinn með osti, kokteil sósu og salati.
- Strekkingur, allra vinsælasti hamborgarinn, egg, beikon, sveppir, ostur, kokteil sósa og salat.
Fardagaflan: tvöfaldi hamborgarinn, ostur, kokteil sósa og salat.- Kóngsbænadagsíhlaup Tvöfaldi Tvöfaldur hamborgari, ostur, egg, beikon, sveppir, laukur, kokteil sósa.
- Hundadagakonungur Tvöfaldur hamborgari, ostur, tómatsósa, salat, tómatar, pickled relish, laukur, sinnep og skinka.
- Þjóðarrembingur, Íslands stærsti borgari - aðeins fyrir alvöru fjallamenn: The Superjeepers Superburger, þrefaldur hamborgari með osti, beikoni grillsósu, sveppum, lauk og tómat.
- Landssynningur: Kjúklinga borgari, ostur, karrý cokteil sósa, salat, tómatur og pickles.
- Rosi: Beikon og tvö egg með ristuðu brauði og smjöri.
Samlokur:
- Samanbitinn: Heit samloka, ostur og skinka.
- Nauðbitinn: Klúbb samloka, ostur, beikon, sveppir, sósa og salat.
- Veðurbitinn: Heit samloka, pepperoni, ananas, laukur, kokteil sósa.
- Frábitinn: Heit samloka, ostur, ananas, salat og sósa.
- Frostbitinn: Kaldar samlokur með rækjusalati, hangikjötssalati, túnfisksalati, roast beef salat.
- Dýrbitinn: Kaldar samlokur með skinku og osti, laxi eða reyktum silung.
Aukageta, aukalega fást:
- Kokteil sósa, franskar kartöflur, laukhringir, egg og fl.
Tertur og kökur, kaffi, kakó, te:
- Kaffibrauð, kökur, tertur og muffins, allan daginn.



