• English
  • Íslenska
  • Hrauneyjar
  • Hotel Highland
  • Hotel Skogar
  • Hotel Ranga
  • All Season Hotels
  • Heim
  • Hrauneyjar hálendismiðstöð
  • Gisting og Verð
  • Veitingar
  • Afþreying
  • Áhugaverðir staðir
  • Landakort
  • Myndasöfn
  • Hafa samband
  • To pass validation of validator.w3.org..in case ther's no sub navigation
Hálendismiðstöðin Hrauneyjar
  • Velkomin til okkar
  • Sértilboð
  • Ljósmyndasamkeppni
  • Fréttir
  • Atburðir
  • 31.08.2010 Aurora Forecast Sept - Oct 2010
  • 05.03.2010 Ranga in the Financial Times
  • 05.03.2010 Eyjafjallajökull eruption
  • 20.02.2010 Latest aurora news from Hotel Ranga
  • 28.01.2010 Aurora borealis forecast
  • Meira..

    Mailinglist

    Join our mailing list and recieve great offers Sign up
    • You are here:
    • hrauneyjar.is
    • IS
    • Hrauneyjar hálendismiðstöð

    Hrauneyjar Hálendismiðstöð & Upplýsingar.

    Staðsetning Hálendismiðstöðvarinnar er norð - austan við Heklu, við köllum okkur gjarnan "Dyrnar að hálendi Íslands" GPS: 64°11´50.56 N og 19°17´07.42 W –
    Við erum í jaðri hálendisins, þar sem byggðin endar og við tekur hið óviðjafnanlega hálendi Íslands með sinni mögnuðu fegurð og leyndardómum. Ótrúlegt en satt þá erum við aðeins 150 km frá Reykjavík og til okkar er malbikaður vegur alla leið í hlaðið. Það er fært til okkar á öllum bílum meira að segja flesta daga ársins, það er auðvelt að finna okkur og að rata til okkar.

    Gistihúsið á Hrauneyjum eða Hálendismiðstöðin eins og við köllum okkur gjarnan, rekur vel þekktan veitingastað, þar fæst staðgóð máltíð og að auki margt af því sem gleymdist heima. Veitingastaðurinn tekur allt að 180 manns í sæti.

    Við seljum einnig eldsneyti á bílinn, við erum með upplýsingamiðstöð varðandi hálendið sérstaklega, við seljum veiðileyfi í nærliggjandi ár og vötn. Við erum með lítinn bar, sjónvarpsherbergi, litla verslun með sælgæti og einnig ýmislegt annað matarkyns í nestið, auk ýmissa nauðsynja í ferðalagið. Við erum með tiltækar fyrir ferðafólk, upplýsingar um veður og færð á hálendinu. Reynum að leysa hvers manns vanda eins vel og í okkar valdi stendur. Þar sem við erum fjarri mannabyggð kappkostum við að gera okkar besta fyrir þá sem um hálendið fara. Í gegn um tíðina hefur það sýnt sig að það er algjörlega nauðsynlegt að vera með góða þjónustu á þessum stað, undir því reynum við að standa.
    Hálendismiðstöðin er mögum kærkominn áningar- og gististaður.

    Í Hálendismiðstöðinni seljum við bæði uppbúin herbergi og svefnpokagistingu:

    • Bjóðum 26 tveggja manna herbergi, hjónarúm, án baðs. Cat - I
    • Bjóðum 30 tveggja manna herbergi, tvö aðskilin rúm, án baðs. Cat- I
    • Við Hótel Háland í 1,4 km fjarlægð bjóðum við 17 viðbótarherbergi, ætluð fyrir svefnpokagistingu, þau eru tveggja manna, tvö aðskilin rúm, án baðs, (Cat-I)
    • Í því húsnæði er einnig eldunaraðstaða ætluð fyrir gesti okkar. Slíka aðstöðu fyrir gesti okkar er nú orðið einungis að finna í þessu húsi.

    Á Hrauneyjum eru samanlagt 99 herbergi að Hótel Háland meðtöldu og við getum hýst 210 gesti á sama tíma.

    Við erum félagar í Ferðaþjónustu bænda, bær númer 670
    Hálendismiðstöðin er opin allt árið að undanskildum jólum og áramótum.

    Hálendismiðstöðin tekur þátt í verkefninu Hekluskóagar ásamt fleiri fyrirtækjum og stofnunum, en svæðið umhverfis Hrauneyjar hefur verið friðað fyrir suðfjárbeit í rúm 30 ár.

    Sími: 487-7782 Fax: 487-7781 Netfang: hrauneyjar@hrauneyjar.is

    Prenta | Senda á vin
    • Hálendismiðstöðin Hrauneyjar
    • Sprengisandur vegur F26
    • Ísland
    • Sími: (354) 487 7782
    • Fax: (354) 487 7781
    • E-mail: hrauneyjar@hrauneyjar.is